Karellen
news

Bangsinn Blær mættur

16. 10. 2019

Vináttubangsinn Blær er kominn aftur til okkar eftir að hafa dvalið í Ástralíu í sumar. Blær laumaði sér í slökkviliðsbílinn og birtist hér með Bjarna slökkviliðsstjóra á mánudaginn þegar hann kom að fræða elstu börn leikskólans. En Bjarni kemur árlega með Loga og Glóð (aðstoðarálfa sína) og hittir elstu börnin og fer yfir eldvarnir með þeim.

Blær semsagt laumaði sér með Bjarni í þetta skiptið og Bjarni tók því nú bara mjög vel og aðstoðaði Blæ við að afhenda þeim börnum sem áttu eftir að fá litla Blæ. Nú eiga öll börnin í leikskólanum sinn eigin litla Blæ hér sem þau geta leitað til og knúsað og fá svo að fara með hann heim þegar þau hætta í leikskólanum.

© 2016 - 2024 Karellen