Karellen
news

Óvenjulegur leiðtogadagur

03. 04. 2020

Samkvæmt skóladagatali leikskólans er Leiðtogadagur hjá okkur í dag, föstudaginn 3. apríl en leikskólinn starfar m.a. eftir hugmyndafræðinni „Leiðtoginn í Mér/The Leader in Me“.

Þar sem öll börn, foreldrar og starfsfólk leikskólans er heima í sóttkví var ekki mögulegt að hafa leiðtogadaginn í þeirri mynd sem við höfum áður gert. Ákveðið var samt að gera eitthvað skemmtilegt og hafa búningadag í dag - saman heima og hafa gaman. Starfsfólkið setti myndband með kveðjum í ýmsum búningum o.fl. inná facebook-foreldrasíðuna og í dag hafa börnin verið að setja myndir af sér í búningum með kveðjum. Þetta hefur verið mjög gaman og skapað skemmtilega stemningu, allir eru farnir að hlakka til að hittast aftur.

© 2016 - 2024 Karellen