Karellen
news

Krakkafundur

27. 09. 2019

Í gær óskuðu börn á Sjónarhóli eftir krakkafundi með leikskólastjóra. Vel var tekið í þá ósk og funduðu sex börn með leikskólastjóra og komu sínum erindum á framfæri. Það sem helst brann á þeim var að það vantaði að laga fótboltavöllinn út í garði, vantaði fleiri búninga, fleiri grænar dýnur í salinn, að kaupa fleiri perlur og mikilvægt væri að allir myndu leika saman í leikskólanum. Í dag var svo ráðist strax í að lagfæra fótboltavöllinn og búið er að setja það sem þeim finnst vanta á innkaupalistann, þannig að það er í vinnslu. Saman verðum við svo hjálpast að með að allir geti leikið saman og haft gaman. Saman getum við meira :)

© 2016 - 2024 Karellen